31.10.02

Svánska flikkar

Á þessari ágætu síðu er að finna eilítið spé á svánska túngu.
Gætið þess að lesa hana, því þó hún sé kunnugleg í útliti þá leynir hún á sér.
Vil ég þó vara menn við því að hún gæti verið tyrfin fyrir þá sem ekki eru vanir því að lesa norðurlandamálin, en það er um að gera að reyna samt...

29.10.02

Geimhundur dó eftir nokkra klukkutíma!

Rússneski hundurinn Laika var fyrsta lífveran, sem send var á sporbaug um jörðu. Var hún send út í geim í nóvember árið 1957 með Spútnik 2 geimfarinu og héldu Rússar því fram að hún hefði lifað um það bil viku á sporbaug.
Nýjar upplýsingar hafa leitt í ljós að hún dó eftir aðeins nokkurra klukkutíma geimferð sökum ofhitnunar og stress.
Á fréttavef BBC er að finna ítarlegri grein um geimferðina og fleira...

28.10.02

24.10.02


Baggalútur

Ja, það verður seint sagt annað en að baggalutur.is er með betri síðum á netinu. Ozzy Lovesporn rakst á þessar kímnu myndir þar í morgun. Fréttirnar sem þeim fylgja má finna á lútnum...



Ellert Loftsson, hvalveiðimaður rennir fyrir hrefnu við Grímsey. Gljúfrageir heldur hér á vélinni og ef grannt er skoðað má sjá Ómar skelfingu lostinn í flugstjórnarklefanum.


23.10.02

Nonni litli

Nonni litli sá bílinn hans pabba síns aka framhjá leikvellinum og inn í skógarjaðrið. Þar sem Nonni er mjög forvitinn drengur, elti hann bílinn og sá pabba og Siggu frænku í ástríðufullum faðmlögum. Nonna litla fannst þetta mjög spennandi og fylgdist með í nokkra stund. Hann gat varla hamið sjálfan sig eftir að heim var komið og byrjaði, mjög æstur, að segja mömmu sinni frá:
"Mammamamma, égvarútáleikvelliþegarpabbiog..."
Mamma bað hann um að róa sig aðeins. Hún vildi endilega heyra söguna hjá honum, en hann yrði að tala rólega. Svo Nonni byrjar aftur:
"Ég var úti á leikvelli og ég sá pabba fara með Siggu frænku í bílnum inn í skóginn. Ég elti þau og hann var að kyssa Siggu frænku, svo hjálpaði hann henni að fara úr pilsinu, svo hjálpaði Sigga pabba að fara úr buxunum, svo lagði Sigga frænka sætin aftur og lagðist, svo lagðist pabbi..."
Á þessari stundu, stoppaði mamma Nonna hann af og sagði:
"Nonni minn, þetta er mjög svo áhugaverð saga, hvernig væri að þú geymdir hana þangað til í kvöldmatnum. Mig langar svo til að sjá svipinn á honum pabba þínum þegar þú segir hana í kvöld."
Við kvöldmatarborðið, biður mamma Nonna litla um að segja þeim söguna. Nonni byrjar að segja frá, lýsir þessu öllu saman mjög vandlega, þegar hann elti bílinn inn í skóg, þegar þau afklæddust, lögðust niður og, síðast en ekki síst þegar pabbi og Sigga frænka gerðu alveg eins og mamma og Halli frændi voru vön að gera þegar pabbi var á sjónum...

Heilræði daxinz: Stundum væri betra að hlusta á alla söguna, áður en maður grípur fram í...
Heimski Kani?


High court hang-ups
A most extraordinary trial is going on in the High Court at the moment in which a man named Chrysler is accused of stealing more than 40,000 coat hangers from hotels round the world. He admits his guilt, but in his defence he claims that - well, perhaps it would be simpler just to bring you a brief extract from the trial. We join the case at the point where Chrysler has just taken the stand.

Counsel: What is your name?
Chrysler: Chrysler. Arnold Chrysler.
Counsel: Is that your own name?
Chrysler: Whose name do you think it is?
Counsel: I am just asking if it is your name.
Chrysler: And I have just told you it is. Why do you doubt it?
Counsel: It is not unknown for people to give a false name in court.
Chrysler: Which court?
Counsel: This court.
Chrysler: What is the name of this court?
Counsel: This is No 5 Court.
Chrysler: No, that is the number of this court. What is the name of this court?
Counsel: It is quite immaterial what the name of this court is.
Chrysler: Then perhaps it is immaterial if Chrysler is really my name.
Counsel: No, not really, you see because...
Judge: Mr Lovelace?
Counsel: Yes, m'lud?
Judge: I think Mr Chrysler is running rings round you already. I would try a new line of attack if I were you.
Counsel: Thank you, m'lud.
Chrysler: And thank you from ME, m'lud. It's nice to be appreciated.
Judge: Shut up, witness.
Chrysler: Willingly, m'lud. It is a pleasure to be told to shut up by you. For you, I would...
Judge: Shut up, witness. Carry on, Mr Lovelace.
Counsel: Now, Mr Chrysler - for let us assume that that is your name - you are accused of purloining in excess of 40,000 hotel coat hangers.
Chrysler: I am.
Counsel: Can you explain how this came about?
Chrysler: Yes. I had 40,000 coats which I needed to hang up.
Counsel: Is that true?
Chrysler: No.
Counsel: Then why did you say it?
Chrysler: To attempt to throw you off balance.
Counsel: Off balance?
Chrysler: Certainly. As you know, all barristers seek to undermine the confidence of any hostile witness, or defendant. Therefore it must be equally open to the witness, or defendant, to try to shake the confidence of a hostile barrister.
Counsel: On the contrary, you are not here to indulge in cut and thrust with me. You are only here to answer my questions.
Chrysler: Was that a question?
Counsel: No.
Chrysler: Then I can't answer it.
Judge: Come on, Mr Lovelace! I think you are still being given the run-around here. You can do better than that. At least, for the sake of the English bar, I hope you can.
Counsel: Yes, m'lud. Now, Mr Chrysler, perhaps you will describe what reason you had to steal 40,000 coat hangers?
Chrysler: Is that a question?
Counsel: Yes.
Chrysler: It doesn't sound like one. It sounds like a proposition which doesn't believe in itself. You know - "Perhaps I will describe the reason I had to steal 40,000 coat hangers... Perhaps I won't... Perhaps I'll sing a little song instead..."
Judge: In fairness to Mr Lovelace, Mr Chrysler, I should remind you that barristers have an innate reluctance to frame a question as a question. Where you and I would say, "Where were you on Tuesday?", they are more likely to say, "Perhaps you could now inform the court of your precise whereabouts on the day after that Monday?". It isn't, strictly, a question, and it is not graceful English but you must pretend that it is a question and then answer it, otherwise we will be here for ever. Do you understand?
Chrysler: Yes, m'lud.
Judge: Carry on, Mr Lovelace.
Counsel: Mr Chrysler, why did you steal 40,000 hotel coat hangers, knowing as you must have that hotel coat hangers are designed to be useless outside hotel wardrobes?
Chrysler: Because I build and sell wardrobes which are specially designed to take nothing but hotel coat hangers...

21.10.02

Gargandi snilld

Já, á þessari slóð er að finna zip-að powerpoint skjal með ógrynni hnyttinna spémynda sem fá mann til að slá sér á lær...
Markaðsfræði 101

  1. Þú sérð flotta stelpu í partíi, ferð til hennar og segir: "Ég er frábær í rúminu!"
    Þetta er bein markaðssetning

  2. Þú ert í partíi með nokkrum vinum og sérð flotta stelpu. Einn af vinum þínum gengur til hennar, bendir á þig og segir: "Hann er frábær í rúminu!"
    Þetta er auglýsingastarfssemi

  3. Þú ert í partíi og sérð flotta stelpu. Þú stendur upp, lagar bindið, gengur til hennar og gefur henni drykk. Þú opnar fyrir hana hurðir, tekur upp það sem hún missir, býður henni far og segir: "Bara svona í leiðinni, ég er frábær í rúminu!"
    Þetta eru almannatengsl

  4. Þú ert í partíi og sérð flotta stelpu. Hún gengur til þín og segir: "Ég heyri að þú ert frábær í rúminu!"
    Þetta er þekkt vörumerki.

19.10.02

Úff púff!

Og ég sem hélt að það gæti ekki orðið svona kalt á jörðinni...
Úti er bölvaður strekkingsvindur og viðurstyggilega kalt - frysti næstum af mér fjölskyldulífið á leið milli húsa í borg óttans í gær.
Á dögum sem þessum er það manni eiginlega óskiljanlegt af hverju manni er minna kalt í -20°C í borg norðursins og af hverju ég hef svona gaman af vetrarferðamennsku. Undarlegt mál sem þyrfti að rannsaka?

16.10.02

Handjárn?

Fregnir herma að monsieur Davidoff (Dávíður) hafi gerst svo frakkur um daginn að tjóðra sig með handjárnum nokkrum í gylltum stíl. Þykir undirrituðum það lofsvert framtak af viðkomandi að létta járnabyrðinni á okkur hinum og er honum því þakkað samstarfið og reiknum við með að sjá hann á elliheimilinu eftir nokkra áratugi... :)

Til hamingju, Lieblingur!

14.10.02

Orðabók andskotans

Einhver sendi þetta prýðilega spé á póstlistann um daginn og mér fannst fleiri verða að fá að njóta þess...
Höfundurinn er víst einhver Ambrose Bierce en engin þekki ég deilin á honum.

hlutafélag h, snilldarleg aðferð til að afla sér persónulegra tekna án persónulegrar ábyrgðar.

tannlæknir k, sjónhverfingameistari sem treður málmi upp í túlann á þér og dregur fullslegna mynt upp úr vasa þínum.

apótekari k, vitorðsmaður læknisins, velgerðamaður útfararstjórans og fyrirvinna maðkanna í gröfunum.

baknaga s, að tala um mann eins og þér finnst, þegar hann fær ekki fundið þig.

dægrastytting kv, aðferð til styrktar dapurleiks; létt æfing til andlegrar veiklunar.

afbrotamaður k, maður gæddur meiri athafnavilja en dómgreind, sem tekið hefur óheppilegu ástfóstri við gott tækifæri.

auðmýkt h, sæmandi og vanabundið hugarástand í nærveru auðs og/eða valda; sérlega viðeigandi þegar launþegi ávarpar vinnuveitanda.

bjartsýni kv, kenning sú eða trú að allt sé fagurt, jafnvel það sem ljótt er, allt gott, einkum hið illa, og allt rétt sem rangt er. Þrautseigustu fylgjendur hennar eru þeir sem vanastir eru því óláni að verða fyrir mótlæti, og hún er helst boðuð með glotti líku því sem apar brosa. Þar sem þetta er blind trú, er hún ómóttækileg fyrir ljósi afsönnunar, gáfnafarslegur kvilli, sem engri meðferð tekur annarri en dauða. Hún er ættgeng, en sem betur fer ekki smitandi.

Ambrose Bierce

7.10.02

Hér kemur eitthvað fyrir þá sem telja sig hafa taugar til Led Zeppelin!

2.10.02






Grein í Outside Magazine um Kropp og slysið.

Grein í Aftonbladet um slysið, sem útlistar í smáatriðum atburðarásina þannan örlagaríka dag.
Já, synd og skömm með Kropparann!
Loðni Chumbawamba tjáði okkur að Göran Kropp hefði farist í klifurslysi í USA.

Hann hlýtur að vera sá langsvalasti Svíi sem sögur fara af (svo sem ekki beint hörð samkeppni í Svedala en... :)

Fyrir þá sem ekki vita (Babe t.d.) þá var Göran Kropp sænskur fjallamaður sem var með þeim reyndari í bransanum. Hann var m.a. að reyna við Norðupólinn (með Svíanum Ole Skinnarmo) um leið og Haraldur og Ingþór en varð að hætta við vegna alvarlegs kals á þumalfingri.
Hann fór á tind Everest (örugglega farið þangað áður líka) árið 1996 um svipað leyti og óveðrið mikla varð en það grandaði eitthvað um 10 manns þar (IMAX leiðangurinn var þar á sama tíma líka).
Nú hann ákvað að vera dálítið mikill töffari og tók sitt hafurtask upp í Stokkhólmi og hjólaði (já þið lásuð rétt) þaðan til Nepal með allan sinn búnað. Hann ku hafa lent á einhverju fjölmiðlafólki á leiðinni og tók fólkið viðtal við drenginn. Nú svo þegar hann lagði af stað aftur þá missti hann víst vatnsbrúsann sinn. Einhver blaðasnápurinn keyrði á eftir honum og lét hann fá brúsann aftur. EN... Görangufan (Jöran jubber) var nú ekki ánægð með það og hjólaði til baka á staðinn þar sem hann missti brúsann, hjólaði svo af stað aftur og mælti: "Það hjálpar mér enginn að komast á Everest!"
Hvílík argasta snilld!
Nú svo á Everest þá var hann í sóló eins og menn höfðu væntanlega giskað á og var engum háður um neitt. Hann neitaði að nota sömu leiðir í gegnum Khumbu skriðjökulinn og hinir og fann þess í stað sína eigin leið í gegnum þannan varasama kafla á leiðinni. Nokkuð nett speki.
Já, ekki man ég betur en að hann hafi komist upp um leið og IMAX liðið. Reyndar man ég ekki hvort hann notaði súrefni en mér finnst það einhvern veginn mjög ólíklegt.
Svo er skemmst frá því að segja að hann hjólaði svo aftur heim til Svíaríkis án aðstoðar.

Eitthvað heyrði ég svo af því að hann hefði ætlað að fara einn á Suðurpólinn - frá Stokkhólmi. Hann ætlaði víst að fara á einhverjum hlandkoppi (árabát eða álíka) en mig minnir að hann hafi átt að hafa hætt við þar sem hann hefði séð að eftir einhverja 2 mánuði á smákænu (eða hvað þetta átti nú að taka langan tíma) myndi hann hafa rýrnað svo mikið líkamlega að hann ætti engan möguleika á að komast á pólinn...
Þannig fór nú með sjóferð þá.

Það er því ekki að ósekju að heimsbyggðin sér á eftir þessum ferðalangi!

Nú svo er gaman að geta þess að rétt í þessu hringi Chumbawamba eldri í mig af slysni. Hann ætlaði víst að hringja eitthvað innan höfuðborgar norðursins en á einhvern ótrúlegan hátt hringdi hann í vinnusímann minn (ekki nema 3 stafir af 7 vitlausir :). Efast um að hann hafi vitað að þetta var ég samt... Bið að heilsa honum Illug!