26.8.02

Eyðieyjuraunir
Á eyðieyju einni fjarri allri mannabyggð (auðvitað) strandaði skip en á skipinu var fólk samankomið af ólíkum þjóðernum. En það var ekki fyrr en mánuði síðar sem greyið fólkið fannst og hafði þá ýmislegt á daga þeirra drifið...
Strandaglóparnir voru:
2 ítalskir menn og ein ítölsk kona
2 franskir menn og ein frönsk kona
2 þýskir menn og ein þýsk kona
2 grískir menn og ein grísk kona
2 breskir menn og ein bresk kona
2 búlgarskir menn og ein búlgörsk kona
2 japanskir menn og ein japönsk kona
2 kínverskir menn og ein kínversk kona
2 bandarískir menn og ein bandarísk kona
2 írskir menn og ein írsk kona
2 íslenskir karlmenn og 1 íslensk kona

Mánuði síðar á þessari sömu eyju höfðu eftirfarandi atburðir átt sér stað:
Annar Ítalinn drap hinn vegna ítölsku konunnar.
Frönsku mennirnir og franska konan lifa í sátt og samlyndi.
Þjóðverjarnir hafa komið sér upp mjög stífu vikulegu fyrirkomulagi um að heimsækja þýsku konuna.
Grikkirnir sofa hver hjá öðrum á meðan gríska konan þrífur og eldar handa þeim.
Bretarnir bíða enn eftir að einhver kynni þá fyrir ensku konunni.
Búlgararnir horðu lengi á sjóndeildarhringinn og svo á búlgörsku konuna og stungu sér síðan til sunds.
Japanirnir sendu símbréf til Tokýó og bíða enn leiðbeininga.
Kínverjarnir hafa komið upp apóteki, vínbúð, veitingastað og þvottahúsi og kínverska konan er barnshafandi af völdum "þeirra" því starfsmenn vantar.
Bandaríkjamennirnir eru á barmi taugaáfalls því bandaríska konan kvartar í sífellu yfir líkamsvextinum sínum; yfir eðli konunnar; hvernig hún er fær um að gera hvaðeina sem þeir geta; nauðsyn þess að lifa fullnægjandi lífi; jafnri skiptingu á heimilisverkum; hvernig sandurinn og pálmatréin valda því að hún virðist feitari; hvernig síðasti kærastinn virti skoðanir hennar og kom betur fram við hana en þeir tveir; hve samband hennar við móður sína verður betra með degi hverjum og að lokum hve skattarnir eru lágir og að það skuli aldrei rigna.
Írarnir tveir hafa skipt eyjunni í norður og suður og sett upp landamæri. Þeir minnast ekki hvort til kynlífs hafi komið því það er allt í móðu eftir fyrstu lítrana af kókosviskíinu. En þeir eru sáttir því Bretarnir eru ekki að njóta sín.
Íslendingarnir eru orðnir stórskuldugir við verslanir og veitingahús Kínverjanna og á brugghús Íranna. Íslenska konan er búin að sofa hjá ítölsku, frönsku og amerísku karlmönnunum á meðan íslensku karlmennirnir eru búnir að reikna út að þeir væru fallegastir, sterkastir, gáfaðastir og fjölmennastir miðað við höfðatölu.
Setti heimsmet í farsímakasti
Jens Kristinn Gíslason frá Akureyri bar sigur úr býtum í heimsmeistarakeppni í farsímakasti sem fram fór í Finnlandi um helgina. Jens kastaði Nokia 5510 um 66,72 metra og setti nýtt heimset. 90 keppendur frá sjö löndum tóku þátt, en keppnin fram fór í Finnlandi í þriðja sinn.
Jens, sem er 24 ára kveðst hafa æft mánuðum saman fyrir leikana með því að lyfta lóðum og spila íslenska útgáfu af spilinu RISK. "Ég hugsaði aðeins um að kasta sem lengst. Það var auðvelt að kasta þessum síma því ég átti hann ekki," sagði Jens sem stefnir að því að kasta 80 metra á næsta ári.
Hægt er að kasta farsímum í þremur flokkum: með hefðbundinni aðferð, kasta með læstum olnboga eða nota frjálsa aðferð. Með frjálsri aðferð eru gefin stig fyrir stíl, búning, persónuleika og hvort keppandi sé ódrukkinn. Ástæðan fyrir því að gefin séu stig fyrir hvort keppandi sé ódrukkinn kann að vera sú að keppnin hefst ætíð á bjórdrykkju. Jens fékk bónusstig fyrir að jaga eins og á þriðja bjór en það er talið með erfiðustu áhættuatriðunum í keppninni. Tekið af mbl.is

Ja, ekki er nú öll vitleysan eins...
Ekkert í gangi
Þið eruð svo steingeldir að skrifa. Ætlar ekkert að fara ganga niður í ykkur?

Mér er svo sem sama næstu vikuna. Ég ætla að dvelja í bústað í Borgarfirðinum og skilja tölvuna eftir heima. Það verður sko gott.

Þeir segja það víst núna í Borgarfirði að lömbin komi vel af fjalli og að dilkarnir eigi eftir að skila miklu. Það er víst búið að ná öllum heyfeng inn í sveitinni enda voru bændurnir að slá saman í nýja baggavél. Annars hefur verið vætutíð síðustu vikur sem hefur laggst illa í mjöðmina á Hjalta í Gröf. Marinó á Bakka er víst búinn að selja kvíguna á fæti til Bretlands en það fæst víst svo gott verð fyrir þær um þessar mundir. Ég hef nú ekki trú á að Mummi á Brekku sjái þá kollóttu aftur því helvítis láfótan hefur verið að gera usla upp á heiði eftir að Anton í Baska lét riffilinn vestur í Dali. Svo eru Gulli og Jens á Hóli að fara utan í haust og ekkert víst hvað tekur við hjá þeim. Sigurður á Kleppi hefur legið í gæs að undanförnu en Friðfinnur í Vogum þurfti að skrá sig á sveitina í vor sem leið. Tíkin hans Kára hefur þó ýlfrað mikið síðustu daga og það veit á gott fram að jólum. Við sjáum hvað setur.

22.8.02

O ye, of little faith
Hefuru enga trú á nágrönnum okkar Svíunum, Guðmundur? Þeir hafa verið að búa til bifreiðar frá ómunatíð og hef óbilandi trú á því að þeir geti búið til bifreiðar sem bila sjaldnar en Súkkan, óháð því hvort bíllinn er hundgamall eða ekki. Ég neita því ekki að vissulega er ég ver staddur í Svíaríkinu ef til alvarlegrar bilunnar kemur en það er örugglega hægt að unita það. Þetta er jú einu sinni bara bíll.
En að öðrum málum, nú líður senn að því að við Eydís höldum út í víking enn á ný og ef fram fer sem horfir sennilegast í síðasta skipti. Í ljósi þessa og þar sem almannarómur kveður um norðurferð Finnans um helgina vil ég leggja fram tillögu um ölæði af hætti Molbúa þar sem ég hef ekki nokkurn minnsta áhuga á því að eyða síðustu helginni minni á Íslandi í dágóðan tíma í kulda og vosbúð í leit að einhverjum Ítala sem enginn hefur grun um hvar hugsanlega gæti verið.

21.8.02

Bowling í gærkvöldi

Jens, Anna, Siggi, Hjalti und Ich fórum í bowling í gærkvöldi. Jens kom, sá og rústaði okkur hinum með 4 fellum og álíka mörgum feykjum sem skiluðu honum 183 stigum. Siggi kom næstur með 118 og svo videre. Hlaust af þessu hin ágætasta skemmtun án þess þó að aðrir sögulegir atburðir hafi hlotist af. Á eftir var svo haldið í ike að heldrimanna sið í liðveislu Guðrúnar Birnu og Kjartans Sveins. Mun ljóst vera að endurtaka þarf þetta program nokkuð jafnt og þétt í vetur komandi þegar norðurbandalagið gerir innrás sína í hina litskrúðugu menningarborg Reykjavík. Víst er að ásýnd hennar mun þá strax taka mið af Molbúaháttum þeirra og bera keim sinn af þeim um ókomna tíð.

Er illug pauwer að fara fjárfesta í Volvo Amazon í alvörunni? Hvernig ætlar hann að halda gripnum gangandi þarna í Svíaríki, án Súlna og Sigga Sæm?

20.8.02

Súkkuævintýrið er á enda
Það er með tár í vanga sem ég hugsa með söknuði til allra þeirra stunda sem ég hef eytt ofaní húddinu og undir þeirri bifreið sem nú í seinni tíma hefur verið Blátoppur. Súkkan hefur nú verið seld og mun varla koma uppí mínar hendur á ný. Mér voru gerð vel á annað hundrað tilboð í bílinn og varð það úr að Stefán nokkur Gunnarsson var sá eini sem ég taldi vera þess verðugur að eiga slíkan kostagrip sem djásnið mitt fyrrverandi er. Hann er traustur maður og í alla staði drengur góður og veit ég að hann mun gæta hennar af sömu ástúð og ég hef gert í tímanna rás.
Sala þessi hefur þá aukið allnokkuð líkurnar á því að við skötuhjúin fjárfestum í bifreiðinni sem sýnd er hér að neðan og verða tímar að leiða í ljós hvort sú bifreið verði mér jafn kær og súkkan var. Það er því með trega sem ég segi bless vil ég að menn minnist hennar með mínútu þögn.

PS. Mér finnst myndin ekki eiga að geta valdið deilum bara af því að stelpugreyið fékk ekki stólpa til þess að sitja á. Eða er það kannski ekki boðskápurinn ;)

Auglýsingastofa í Brasilíu fékk það verkefni að gera auglýsingu fyrir sleipiefni nokkurt. Menn vildu ekki leggja áherslu á efnið með beinum hætti heldur vildu hafa eilítið lúmskari boðskap.
Niðurstaðan varð auglýsingin hér til hliðar en hún virkar mjög hugguleg og engan veginn hneykslandi...
...þar til maður fer að skoða smáatriðin!
Auglýsingin hefur valdið deilum bæði í S-Ameríku og Evrópu. Af hverju ætli það sé?

Kíkið einnig á þessa slóð til að auðga andann.

16.8.02


Af örlögum súlustaða
Þessi spektarvísa barst á póstlistann frá Böllmanninum fyrir stundu og þótt mér við hæfi að koma henni á framfæri.





Hvar má fara úr hverri flík,
hvar skal spenntur bogi?
Rúin slíku er Reykjavík,
reyndu í Kópavogi.
Snáfaðu burtu súlufrík,
slokkni frygðar logi.
Ekki ríða í Reykjavík,
ríddu í Kópavogi!
Ingibjörg er Grýlu lík
en Gunnar hlynntur sogi.
Það sem rann í Reykjavík
rís í Kópavogi.

14.8.02




Talk, shave and brush all in once
The new killer application: 3F triple functionality mobile phone!

Ætlaði að benda þeim sem hafa áhuga á að setja inn myndir á bloggið (eins og Gulli og fleiri) þá er hægt að setja slóð á allar myndir á netinu í pistil.
Skipanalínan er: img src="http://svæðiáneti.is" width="x" height="y" (inni í < >) þar sem slóðin er gefin sem src og breidd/hæð (x/y) gefin upp í pixelum.
Ef menn eru með myndir sem þeir koma ekki inn á vefþjón þá er hægt að senda þær á mig eða Gulla og við komum þeim einhvern veginn fyrir og sendum ykkur slóðina.

13.8.02

Þetta blogg er gott mál Gulli er sýnilega ekkert að gera um þessar mundir og er það vel þar sem hann er sniðugur strákur. Líðið er að frétta af björgunarmálum um þessar mundir en dagurinn í dag átti að verða sniðugur með eindæmum þar sem ég var að vonast til að geta farið að starta leit að tveimur Belgum sem sýnt var í gær að mundu ekki skila sér á réttum tíma af hálendinu, en því miður þá skiluðu þeir sér á Húsavík í tíma og varð mér því af skemmtiefni dagsins því þurfti ég að finna mér annað að gera og grillaði ég því 40 pylsur rétt áðann og átt um það bil 1/8 af bunkanum. Mummi er farinn að kvarta yfir þessum miðli á póstlistanum og og er það vel en væl Mumma veitir mér sérstaklega ánægju, ég vona að hann kveljist.
Ný bibbreið
Nú er svo í pottinn búið að Súkkan gæti farið að verða fyrir eigendaskiptum. Þó hún hafi verið mér kær gegnum tíðina mun hún að öllum líkindum fara á lítin pening sökum smá bilanavesens sem ég nenni ekki að standa í ef ég sel hana, enda hef ég eingöngu verið að lappa uppá hana gegnum tíðina af tilfinningarlegum ástæðum. En líkt og maður kemur í manns stað getum við skötuhjúin ekki verið bíllaus og ætlum að öllum líkindum að brjóta odd á oflæti okkar og kaupa bifreið í RíkiSvíans. Er það bíll af Volvo Amazon gerð og er all nokkura ára gamall og mun fara á svipuðu verði og Skjöldur gerði hér forðum daga þannig að eitthvað fæ ég að borga á milli, en nú dæmi bara hver fyrir sig.

12.8.02

Í góðu yfirlæti

Sigga og Ásu þakka ég ánægjulegt heimboð á föstudagskvöldið. Þar sátum við Guðrún Birna, Kjartan Sveinn, Marinó, Hilma og Gulli Búi til skrafs og ráðagerða fram undir miðnætti. Allir virtust hafa gaman af þar til talið barst að barnsfæðingum. Þá tók kaupsýslumaðurinn að skipta litum uns hann flúði vettvang með þeim orðum Hilmu að hann yrði geymdur frammi á gangi þegar að þessu kæmi. Urðum við þá að taka upp léttara hjal um vaxtastig og fjárfestingar til að koma Marinó í eðlilegt jafnvægi á ný.
Gulli Búi átti eitt skemmtilegasta innskot kvöldsins þegar hann rifjaði upp drykkjusumarið hans Gunna í Kjarnaskógi, sem endaði á þeirri gullvægu setningu; ,,OOOHHhhhhh, er ég orðinn virkur á fullum-dögum."
Annars var það helst að frétta að íbúðin hans Sigga er orðin helv.. fín og greinilegt að ekki á að tjalda til einnar nætur á Kleppsveginum.
Gulli tölvunjörður

Samkvæmt upplýsingum bloggrekenda, þá bjóða þeir ekki upp á þá þjónustu að hægt sé að setja inn myndir á bloggið. Þeir benda á að það eru reknar aðrar síður með slíka þjónustu, sem yfirleitt þarf að borga fyrir. Gulli hefur hins vegar greinilega hakkaði sig inn í tölvukerfi blogger.com og troðið þessum rússneska langferðarbíl þar inn með góðu eða illu, sennilega illu.

9.8.02

7.8.02

Helgi óttans
Helgin byrjaði eiginlega á fimmtudaginn var þegar maður að nafni Spítti (Crazy bear = Kristbjörn Gunnarsson) bjóll í mig og tjáði mér að snargeðveikur niðurlendingur að nafni Játvarður Húddjíbenes væri búinn að ylja fósturjörð vora með nærveru sinni. Skellti ég mér því niður í miðborgina og tók einn lítinn öllara með þeim kumpánum og fleirum þar sem téður Játi sat í Hawaii-skyrtu, sólbrúnn og glaður og þurrkaði hálsinn á sér af áfergju - virtist halda að það væri hlýtt úti og að hann væri staddur í Paradís.
Jæja, ég nennti nú ekki að hanga þarna mikið lengur og kvaddi drenginn með virktum og spurði hann hvort hann ætlaði ekki með mér í Skaftafell þessa löngu helgi. Hann sagðist þá vera vant við látinn við að sleikja endaþarminn á einhverjum útlendingaplebbum en yrði einmitt á Hótel Skaftafelli á laugardags- og sunnudagskvöld. Ætluðum við að heyrast í telefunken og kneyfa saman öhl úr hnefa annað hvort kvöldið.
En nóg um það. Föstudagurinn rann upp með drungalegu veðri og ég skellti mér í Bónus (þar sem fjármálajöfrarnir verzla ódýrt hrossakjöt) og keypti þar heil ósköp af grillmat og mæru (Húsvíkingur með mér í för) og kostaði þetta heil ósköp af bleðlum Mammons. Helsta afrekið var það að keyptir voru 5L af eðalnektar sem kenndur hefur verið við Trópí en einungis tveir aðilar skyldu drekka hann á milli sín.
Helgin leið í spekt og stemmingu þrátt fyrir fámennið. Löbbuðum hinn snilldar dal Morsárdal á enda, skoðum Nam-svæðið í Bæjarstaðaskógi (engin fiðrildi þar núna því miður) og klifruðum á því snilldarsvæði Hnappavöllum. Á sunnudeginum skelltum við okkur svo í glatað meint ísklifur í Svínafellsjökli en sú ferð endaði nú illa því ég fékk massíva sinaskeiðabólgu fyrir sakir axanotkunar, klifurs og fyrst og fremst flísalagnar á eldhúsi undirritaðs í síðustu viku. Ekki eru liðamót mín vön því álagi sem fylgir leirlagningu enda vanari lyklaborðanotkun t.d. og hlaut ég þessi meiðsl fyrir vikið. En þetta er nú allt að lagast svo það er bara gaman að þessu svona eftir á.
Til að bæta gráu ofan á svart þá keyrði ég líka á svo sem eins og einn Kaura við Svínafell en gemlingur nokkur ákvað að aulast yfir þjóðveginn á eftir öðrum kindum. Ég hægði á mér þegar tvær þeirra fóru yfir en svo stukku tvær í viðbót, óséðar úr vegakantinum fyrir mig og lenti sú fremri á stuðaranum á um 60km/klst og tjónaði hann eilítið. Hún afrekaði þó einhvern veginn að haltra af veginum. Ég tilkynnti þó bóndanum um atvikið og hann sagði að ég ætti bara að gleyma þessu því hann fengi þetta bætt úr tryggingunum ef ekki er tilkynnt um slysið. Þakkaði mér þó hugulsemina og kvaddi mig með virktum...

6.8.02

HELVÍTIS MARINÓ!!!
Nú eru skilst mér liðnir mánuðir síðan fjármálajöfurinn alræmdi fjárfesti í nýja vagninum og ég hef ekki enn fengið að bera hann augum. Segja ekki sögur að hann hafi kostað á þriðju eða fjórðu millu? Gummi sagði mér að í honum væri að finna mikið af sjaldséðum aukabúnaði enda ekki við öðru að búast af þvílíkri reið. Það er að segja sjálfrennireið. Gaman væri nú að heyra aðeins frá því Gummi. Af mér er það að frétta að ég er orðinn alvöru verkamaður sem vinnur til tíu á kvöldin. Sá litli frítími sem til staðar er fer að mestu í strætóferðir enda er ég búinn að losa mig við kerruna mína.
Frídagur verslunnarmanna
Jæja, þá er "frídegi" verslunnarmanna lokið. Þetta er sennilega eitt mesta rangnefi á degi sem til er en skítt með það. Helgin var nú með meira lagi tíðindalítil og er það illa þar sem lítið var um spaugileg atvik. Þó standa uppúr (þó ekki á spýtunni) tónleikar þeirra dúndurfréttamanna, þvílík gargandi snilld og fáir menn ná plöntunni vel og Jésús hljómborðsleikari, sem ég nb. sá í sjónvarpinu í einhverju myndbandi í gær. Þeir spiluðu Zeppelin af svo mikilli áfergju að fjöll allrar Eyjafjarðarsveitar tóku undir. Síðan þegar allt ætlaði um þverbak að ganga og tónleikagestir héldu að hljóðfærarleikararnir gætu ekki toppað sjálfa sig þá gerðu þeir sem lítið til og hristu framúr erminni hið mikla snilldar lag "Júlí morgun" með þeirri stórgóðu sveit Uriah Heep okkur til mikillar gleði. Er nefnilega svo í pottinn búið að lag þetta er á margan hátt tengt við Mordor og því kærkomin viðbót í lagasafnið. Þeir spiluðu það þó ekki af jafn mikilli innlifun og Heep meðlimir sjálfir, sem er kannski af hinu góða því þá værum við ennþá að hlusta á tilfinningaþrungin orgelsóló og dynjandi la-la-la kafla, þar sem að lagið er jú á þriðja sólarhring í upprunnanlegri útgáfu (eða allt að því, að minnsta kost tveir).
En ætli það sé ekki kominn tími til að setja .inn yfir iið að sinni og reyna að koma þessari annars stuttu vinnuviku almennilega í gang. Já og Marinó, til hamingju með kerruna, mér áskotnaðist sá heiður að berja tryllitækið augum um áðurnefnda helgi og er þessi bibbreið vel.

2.8.02

Til hamingju Marinó
Marinó hefur fjárfest í nýjum og stórglæsilegum eðalvagni. Vagninn sá er sérstaklega hannaður með kaupsýslumenn í huga. Þegar öll 140 hestöflin renna ljúlega fram hjá manni og sólin speglast í sandseruðu lakkinu veit maður að þarna fer maður sem hægt er að treysta fyrir peningum. Það sem er sérstakt við vagninn er að hann er með innbyggðum skynjurum sem nema væntingar markaðarins. Þannig borgar bíllinn sig fljótt upp. Auk þess má nota hann til þess að fara og versla ódýrt í Bónus eins og Hjalti hefur bent á og því má segja að þarna hafi verið gerð góð kaup.

En að öllu gamni slepptu, þá erum við að tala um; Nissan Primera, árg. 2002, ek. 5000 km., 2000 cc., 140 hö.,
sjálfskiptur, álfelg., spaulerkit, geisli og krómpúst. (en ég hef þó ennþá krókinn framyfir :-) Verðmæti; eitthvað á 3. milljónina

Til hamingju með þetta hjónakorn og megi bíllinn reynast hið mesta happafley.
Boltinn
Fregnir herma að eftirfarandi séu búnir að lýsa yfir þátttöku í boltanum í borg óttans í vetur: Gummi, Siggi T, Marinó, Frizzi, Kauri, Eiki. Eftir er að ná í eða fá eindregin svör frá Einsa Babe, Helga Val, Dávíði, Jóhanni og Símboða. Ef þið vitið um fleiri sem eru líklegir þá er um að gera að láta í sér heyra.

1.8.02

Skátabolti fyrir sunnan?
Ek hefi haft spurnir um viking þeirra Kára, Finnboga og Helga í suður átt. Það er spurning hvort við förum ekki að ná í einn góðan skátabolta hér í votlendinu fyrir sunnan um vetur komandi. Sjá vér höfum nú þegar mig (Gumma), Sigga T, Marinó, Jens (gæti þó verið á leið til Frakklands), Einar og Davíð. Ef fleiri fara að rúlla niður Ártúnsbrekkuna verðum við ekki lengi að ná í 10 manna hóp. Er ekki svo Jóhann og einhverjir fleiri gamlir og gegnir hér í leyni einhversstaðar? Það væri gaman að spila saman einu sinni í viku.