X: Góðan daginn. Hr. X heiti ég á rannsóknardeild Símans og er að leita að Helga Þórðarsyni.
Y: Góðan daginn ungi maður. Ég er búin að reyna að hafa uppi á honum í nokkra daga nefnilega. Hann ætlaði nefnilega að leigja íbúðina mína, var búinn að borga inn á tryggingu en hefur ekki látið í sér heyra í nokkurn tíma.
X: Já, hann ætlaði nefnilega að taka þátt í tilraun hjá okkur með nettengingu og ég þarf að hafa uppi á honum vegna þess máls.
Y: Já, ég er sjálf búin að fara á Símann, á Hagstofuna og Lögregluna til að leita að honum og þeir á lögreglunni voru meira að segja bara dónalegir við mig. Hann gaf upp heimilisfang að Funabakka en þar kannast enginn við hann. Hann var búinn að borga inn 25 þúsund og ætlaði að flytja inn 1. ágúst en ég vildi bara fá þetta á hreint áður en ég flyt út.
X: Já, nei ég kannast ekki við þetta mál.
Y: Hann kom svo ósköp viðkunnalega fyrir sjónir en svo bara krossbrá mér þegar ég sá þessa þeldökku konu hans. Ekki það að ég sé einhver rasisti en...
X: Ég veit ekki hvað ég get hjálpað þér en ef ég finn hann þá skal ég segja honum að hafa samband við þig hið fyrsta.
Y: Já, það er gott því ég var að velta fyrir mér að leita til Rannsóknarlögreglunnar eða Útlendingaeftirlitsins til að finna hann.
X: Ég efast nú um að þeir geti mikið hjálpað þér en ég skal láta þig vita ef ég finn hann. Held það væri hyggilegast fyrir þig að bíða eftir að hann hafi samband næstu daga, alla vega þangað til fresturinn sem þú gafst honum rennur út. Ef hann lætur ekki heyra í sér þá hirðir þú bara þennan pening og finnur þér annan leigjanda.
Y: Já, þakka þér kærlega fyrir ungi maður!
X: Já, vertu blessuð!
Saga þessi gerist fyrir hálftíma síðan þegar samstarfsmaður minn var að reyna að hafa samband við þátttakanda í VDSL tilrauninni okkar. Ég gaf honum upp vitlaust símanúmer (0 varð að 6 í númerinu) og þetta samtal varð niðurstaðan. Kellingin var eins og gefur að skilja ekki að reyna að ná í téðan Helga og var endalaust lengi að skilja að um misskilning væri að ræða þegar við hringdum í hana aftur til að skýra málið. Hún vildi að við flettum upp á einhverju til að finna hann nefnilega... Já, það er margt skemmtilegt sem upp kemur í daglega lífinu!


